Heimild: Nerikes Allehanda
Prince Rajcomar, leikmaður Breiðabliks, heldur í dag til Svíþjóðar þar sem hann verður til reynslu hjá úrvalsdeildarliðinu Örebro. Frá þessu var greint í sænskum fjölmiðlum í gær.
Arnór Guðjohnsen, umboðsmaður og fyrrum leikmaður Örebro, hafði milligöngu um málið og mun Rajcomar vera til skoðunar út vikuna.
,,Hann getur spilað allar stöður inni á miðsvæðinu og í framlínunni,“ sagði Lennart Sjögren, yfirmaður knattspyrnumála hjá Örebro, í samtali við Nerikes Allehanda.
Athugasemdir