Heimild: Gong.bk
Þokast hefur í samkomulagsátt milli Garðars B. Gunnlaugssonar og búlgarska liðsins CSKA Sofia um riftun á samningi hans við félagið. Þetta kom fram í búlgörskum fjölmiðlum í gær.
Garðar hefur átt í launadeilu við félagið að undanförnu þar sem hann hefur ekki fengið greitt í rúma fjóra mánuði þrátt fyrir að vera samningsbundinn félaginu til næstu tveggja ára.
Hann hefur hótað forráðamönnum CSKA því að fara með málið til Alþjóða knattspyrnusambandsins, FIFA, verði það ekki leyst.
Samkvæmt frétt sem birtist á vefmiðlinum, Gong.bk, í gær mun Garðar sættast á að fá greidd full laun upp á þrjá mánuði, sem nema í heild 36 þúsund evrum eða rúmum 6.5 milljónum íslenskra króna. Að því búnu mun hann yfirgefa félagið.
Búlgarskir fjölmiðlar segja að með þessu muni CSKA Sofia spara umtalsverða fjármuni þar sem Garðar er samningsbundinn félaginu til 2011, en samkvæmt ákvæði í samningnum á hann að fá sjálfkrafa launahækkun á næsta ári.
Þess er getið að enn sem komið er hafi ekkert félag í Búlgaríu né annarsstaðar í Evrópu sýnt Garðari áhuga.

