Tómas Leifsson er að öllum líkindum á förum frá Fjölni en samningur hans rennur út síðar á þessu ári.
Fjölnir féll úr Pepsi-deildinni í ár en Tómas hefur áhuga á að spila áfram í efstu deild að ári.
,,Það er líklegast að ég fari. Ég vil halda áfram að spila í efstu deild, það er stefnan," sagði Tómas við Fótbolta.net í dag.
Tómas er uppalinn hjá FH en þessi 24 ára gamli kantmaður hefur leikið með Fjölni undanfarin fimm tímabil.
Í sumar skoraði hann þrjú mörk í 18 leikjum í Pepsi-deildinni með Fjölnismönnum.



