Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fös 06. nóvember 2009 09:00
Hafliði Breiðfjörð
Fulltrúar Gothia Cup heimsóttu Ísland
Anna Holberg og Niclas Anderson á Grand Hótel í gær þar sem kynningin fór fram.
Anna Holberg og Niclas Anderson á Grand Hótel í gær þar sem kynningin fór fram.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Frá setningarhátíð mótsins.
Frá setningarhátíð mótsins.
Mynd: Gothia Cup
Það er alltaf gaman á Gothia Cup.
Það er alltaf gaman á Gothia Cup.
Mynd: Gothia Cup
Mynd: Gothia Cup
Mynd: Gothia Cup
Mynd: Gothia Cup
Tveir fulltrúar stærsta fótboltamóts heims, Gothia Cup í Svíþjóð, voru hér á landi í gær og kynntu mótið fyrir íslenskum félögum á Grand Hótel í Reykjavík. Fulltrúarnir, Anna Holberg
og Niclas Anderson ræddu við Fótbolta.net um mótið.

,,Við erum komin hingað til að kynna Gothia Cup fyrir Íslendingum," sagði Anna við Fótbolta.net og Niclas hélt áfram.,,Við komum venjulega hingað á þriggja ára fresti en nú eru komin fjögur ár síðan við komum síðast. Ísland er stór markaður fyrir okkur, mörg íslensk félög taka þátt í mótinu og við viljum koma hingað og hitta þau."

En Gothia Cup er árlega ekki satt?
Niclas: Jú rétt, en þar sem lið frá 60-70 þjóðum koma árlega höfum við ekki tíma til að heimsækja öll lönd árlega.

Eru mörg íslensk lið sem taka þátt í mótinu?
Niclas: Frá 2003 hafa 20-30 lið komið árlega fyrir utan síðasta ár eftir að kreppan skall á ykkur. Samt fengum við 14 lið sem var ótrúlegt á þeim tíma. Við bjuggumst ekki við að fá neitt.

Hafiði gert eitthvað til að hjálpa íslensku liðunum eftir að kreppan skall á til að auðvelda þeim að koma til ykkar?
Niclas: Við gerðum þeim mögulegt að borga í sænskum krónum og þá þurfti ekki að taka aukaskref í að skipta. En í raun er það þannig að áður var það mjög ódýrt fyrir íslensk lið að koma á mótið en í dag er það frekar sanngjarnt.

Hversu stórt er þetta mót?
Anna: Við erum með næstum því 1600 lið frá 60-70 þjóðum árlega.

Niclas: Það eru um 30-40 þúsund leikmenn og ef við bætum þjálfurum og foreldrum við eru 60-70 þúsund sem mæta á Gothia Cup í eina viku á hverju ári. Þetta er 18. -24. júlí.

Hvernig getiði útvegað gistingu fyrir allan þennan fjölda?
Anna: Við erum mest með gistinguna í skólum sem hefur gengið mjög vel. Við eigum gott samstarf við skólana. Við notum líka hótel sem valkost fyrir liðin en flest velja að vera í skólunum.

Er eithvað sænskt lið sem er á bakvið mótið?
Niclas: Já, liðið er BK Håcken sem skipuleggur og á þetta mót. Hitt liðið í Gautaborg, GAIS, var með í mótinu fyrst en hætti því þeir töldu engan hagnað af því. Ég hugsa að þeir sjái eftir því í dag. BK Håcken er sem stendur í 1. deildinni í Svíþjóð. Við vorum í 2. deildinni í fyrra en í ár urðum við í 6. sæti.

Manstu eftir íslenskum leikmönnum í Håcken?
Nicklas: Arnór Guðjohnsen var einn besti leikmaðurinn í liðinu þegar það endaði í sjötta sæti 1. deildar. Svo varð hann eftirsóttur og fór til Örebro. Hann átti stóran þátt í árangri liðsins og var valinn besti leikmaðurinn. Fyrir tveimur árum vorum við svo með Ara Frey Skúlason sem stóð sig mjög vel í 2. deildinni með okkur. Ég man eftir þessum Íslendingum en held að þeir verði fleiri.

Eruði að vonast til að finna fleiri hæfileikamenn með á mótinu?
Niclas: Já auðvitað. Þetta er frábær leið til að finna hæfileikamenn og við höfum svo oft gert það. Leikmenn sem við höfum samið við og selt frá okkur og einnig leikmenn sem eru hjá okkur í dag. En það eru mun fleiri leikmenn sem hafa fundist í gegnum Gothia Cup og umboðsmenn hafa séð þá og þeir farið í stór lið. Leikmenn eins og Andrea Pirlo, Emmanuel Adebayor og Ze Roberto vöktu fyrst athygli á Gothia Cup.

Áttuð þið alltaf von á að mótið yrði svona stór og yrði stærsta mót heims?
Anna: Ég held ekki, ekki í upphafi. Ég hef unnið við þetta í þrjú ár en þegar við fórum í 1000 lið hugsuðu menn að þetta gæti aldrei orðið stærra. Það gerðist samt og við höfum orðið stærri og stærri með hverju árinu. En þetta veltur allt á því að hafa nóg af skólum og völlum í Gautaborg. Við getum ekki haft 3000 lið í dag en kannski í framtíðinni.

Niclas: Við getum ekki haft fleiri velli í Gautaborg því ef vellirnir eru ekki notaðir yfir árið þá væri ekki hægt að spila á þeim þegar Gothia Cup byrjar. Í dag erum við með um 100 velli, bæði gervigras og grasvelli. Hvert lið á að spila allavega fjóra leiki og því er erfitt að fara mikið uppfyrir 1600 lið. Því reynum við annað til að stækka. Til dæmis erum við með lítil mót þar sem við bjóðum 36 liðum til að keppa og liðið sem vinnur fær sæti ferðalag, gistingu og þátttöku í Gothia Cup. Þetta gerum við í um 20 löndum til að gefa fleirum kost á að taka þáttí mótinu.

Hver er ástæðan fyrir árangri ykkar?
Niclas: Auðvitað er það skipulagið sem hefur verið það sama í mörg ár og framkvæmdastjórinn og aðstoðarframkvæmastjórinn hafa verið í þessu frá upphafi. Svo er það bærinn Gautaborg. Það verður að hafa innra skipulagið sem er þar, lestarnar og strætóarnir sem færa fólk á milli staða og svo eru okkar eigin rútuferðir á vellina og í skólana. Svo eru það skólarnir sem ríkið á og gefur okkur leyfi til að nota. Svo er fólkið í Gautaborg mjög vingjarnlegt og jákvætt fyrir mótinu. Gautaborg er mjög stolt af mótinu. Bærinn verður alþjóðlegur, þetta er 300 þúsund manna bær og svo bætast við 70 þúsund til viðbótar meðan mótið er og flestir frá öðrum löndum en Svíþjóð. Fólk er mjög ánægt með þetta og svo græðir bærinn á sköttunum og verslanir og veitingastaðiur græða líka. Því leggjast allir á eitt til að gera mótið eins og það er.

Anna: Þetta gefur fólki kost á að hitta gesti frá mörgum heimshornum sem er mjög spennandi.

Niclas: Svo viljum við gera þetta meira en bara fótbolta. Opnunarhátíðin fer fram á leikvangi sem er stærsti leikvangur í Skandinavíu og það eru 52 þúsund áhorfendu sem horfa. Opnunarhátíðin er eins og á Ólympíuleikunum þar sem 60 þjóðir taka þátt í skrúðgöngunni og 600 dansarar dansa. Svo erum við með söngvara sem er á toppnum í Svíþjóð, Bretlandi og Bandaríkjunum þessa stundina með nýjasta lagið sitt að syngja. Svo erum við með ball og á hverju kvöldi mæta á það 12 þúsund manns. Þetta er eitt stærsta ball Evrópu og margt fleira.
Slapp
banner