Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 06. janúar 2010 06:00
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sognavis | Porten 
Leikmaður KA semur við félag í Noregi
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ingi Freyr Hilmarsson, leikmaður KA, er genginn til liðs við norska 3. deildarliðið Årdal FK. Hjá Årdal FK leikur einnig framherjinn Jóhann Traustason sem spilaði meðal annars með Þór frá 2005-2007.

Ingi Freyr hefur leikið með KA undanfarin þrjú ár en hann lék áður með KS/Leiftri og Leiftri/Dalvík.

,,Ingi stóð sig mjög vel þegar hann æfði með liðinu fyrir nokkrum vikum síðan og ég er viss um að hann er góður kostur sem mun styrkja aðalliðið," sagði Nils Tore Krosshaug, þjálfari Årdal, í samtali við staðarblaðið Sognavis.

,,Við höfum leitað lengi að leikmanni eins og Inga," sagði Jan Kåre Stedje, yfirmaður íþróttamála, í samtali við staðarblaðið Porten.

,,Hann er ákafur og góður leikmaður en við höfum leitað lengi að vinstrifótar varnarmanni og höfum við nú fengið spennandi íslenskan leikmann í leikmannahópinn."

Ingi Freyr mun einnig vinna hjá fyrirtækinu NorSun samhliða knattspyrnuiðkuninni.
Slapp
banner
banner