Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   mán 08. febrúar 2010 06:00
Magnús Már Einarsson
Ingvar Már og Eiríkur Páll í Dalvík/Reyni (Staðfest)
Mynd: Dalvík/Reynir
Dalvík/Reynir hefur fengið Ingvar Már Gíslason og Eirík Pál Aðalsteinsson til liðs við sig frá Magna Grenivík.

Ingvar, sem er fæddur árið 1976, var fyrirliði Magna í 2.deildinni í fyrra. Ingvar á 143 leiki af baki, þar af 97 fyrir Magna en hann hefur skorað 23 mörk í þeim leikjum. Hann getur leyst ýmsar stöður á vellinum.

Eiríkur Páll er uppalinn á Vopnafirði en hann hefur spilað 85 leiki í deild og bikar og skorað í þeim 5 mörk. Hann hefur spilað með Magna undanfarin sex ár með stuttu stoppi hjá Þór á Akureyri. Eiríkur er fæddur árið 1986 og er varnar- og miðjumaður.

Báðir þessir leikmenn hafa æft og spilað með Dalvík/Reyni í vetur og passa vel inn í hópinn.

Dalvík/Reynir hefur spilað ágætlega í vetur og mun spila um 3.sætið í Soccerademótinu við Þór.
Slapp
banner