Heimild: BBC
Didier Drogba framherji Chelsea var maður gærdagsins er hann skoraði bæði mörk Chelsea í 2-0 sigri á Arsenal. Hann viðurkennti eftir leikinn að þetta hafi verið erfið vika vegna fregna um einkalíf John Terry.
Það komst í fréttirnar að Terry hafði haldið framhjá konu sinni með Vanessu Perroncel fyrrum kærustu Wayne Bridge.
,,Við höfum stutt hans eins og við getum og það besta fyrir hann í stöðunni var að spila," sagði Drogba.
,,Það er bara tímaspursmál hvenær það verður hætt að fjalla um þetta mál, en við verðum bara að standa saman og líta fram á veginn."
,,Við reyndum að einbeta okkur að leiknum. Það mikilvægasta er að við erum í efsta sæti deildarinnar."



