Heimild: BBC
Carlo Ancelotti, knattspyrnustjóri Chelsea, var gríðarlega ánægður með frammistöðu John Terry í 2-0 sigurleik liðsins gegn Arsenal í gær.
Einkalíf Terry hefur verið mikið í sviðsljósinu að undanförnu en hann hélt framhjá konu sinni með fyrrum kærustu Wayne Bridge. Þá var tekið af honum fyrirliðabandið hjá enska landsliðinu vegna málsins.
,,Ég vildi bara knúsa hann eftir leikinn til þess að þakka honum fyrir frammistöðuna," sagði Ancelotti.
,,Það er svo mikilvægt að hafa svona leiðtoga. Hann er alltaf við stjórn og er sterkur andlega."
,,Varðandi fyrirliðamálin hjá enska landsliðinu þá var það ekki mín ákvörðun en ég vil ekki dæma ákvörðun hans (Fabio Capello landsliðsþjálfara Englands)."



