Heimild: BBC
Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, vildi meina að lið hans hafi verið betri aðilinn í 2-0 tapi gegn Chelsea í gær. Eftir tapið er Arsenal 9 stigum á eftir toppliði Chelsea.
,,Það er erfitt að kynga tapi sem þessu þar sem mér fannst við betri aðilinn," sagði Wenger.
,,Þeir skoruðu eftir sína fyrstu hornspyrnu, við vorum ekki á tánum. Síðan skoruðu þeir aftur eftir skyndisókn. En fyrir utan þetta er ég stoltur af frammistöðu okkar."
,,Við reyndum mikið en Chelsea varðist mjög vel til síðustu mínútu svo maður verður að hrósa þeim."
,,Við erum svolítið langt á eftir toppliðinu en við munum berjast til síðasta dags."
,,Við komum bara til baka og vinnum okkar næsta leik og sjáum síðan hvar við stöndum," sagði Wenger en Arsenal mætir Liverpool á miðvikudaginn.

