Heimild: BBC
Þá er komið að slúðurpakka dagsins í boði Powerade en frekar lítið er að frétta úr blöðunum í dag.
Marouane Chamakh, framherji Bordeaux, segist frekar vilja fara til Arsenal en Liverpool þegar að hann verður samningslaus í sumar. (Daily Mirror)
Cesc Fabregas, miðjumaður Arsenal, ætlar að hafna nýjum samningi og ganga til liðs við Barcelona. (Sport)
James Vaughan, framherji Everton, fær að fara á láni í þessari viku en Derby og Coventry hafa áhuga á þessum 21 árs gamla leikmanni. (Daily Mirror)
Portsmouth gæti fengið fimmta eiganda sinn á tímabilinu en Mark Jacob framkvæmdastjóri félagsins hefur greint frá því að tveir eða þrír fjárfestingahópar hafi haft samband við stjórnina. (Daily Mirror)
John Terry hefur hringt í Rio Ferdinand, nýjan fyrirliða enska landsliðsins, og lýst yfir stuðningi sínu við hann. (The Sun)
Joshua, 13 ára sonur Pele, er farinn að æfa með Santos í Brasilíu. Pele lék með Santos á sínum tíma. (Daily Mirror)


