Heimild: Sport.is
Hjörtur Logi Valgarðsson, vinstri bakvörður FH, ristarbrotnaði í vikunni og óvíst er hvort að hann verður klár í slaginn þegar að Íslandsmótið hefst 10.maí næstkomandi en þetta kemur fram á sport.is.
Hjörtur Logi verður frá keppni í þrjá til fjóra mánuði en hann vonast til að vera klár fyrir byrjun móts.
,,Það er bara álagið sem gerir þetta að verkum, en engin tækling eða svoleiðis. Stefnan er sú að vera klár strax í byrjun móts, en hvort það takist verður bara að koma í ljós," sagði Hjörtur Logi við Sport.is.
Hjörtur Logi hefur leikið með FH síðan árið 2006 en undanfarin tvö ár hefur hann verið fastamaður í liðinu.
Síðastliðið sumar skoraði þessi U21 árs landsliðsmaður eitt mark í átján leikjum í Pepsi-deildinni.



