Heimild: Sky
Harry Redknapp, stjóri Tottenham, segir að Ledley King eigi skilið sæti í enska landsliðshópnum á HM í sumar.
King hefur lengi glímt við hnémeiðsli og því getur hann lítið æft á milli leikja hjá Tottenham.
Fabio Capello, landsliðsþjálfari Englendinga, hefur sagt að hann vilji einungis leikmenn sem eru meiðslalausir en Redknapp telur að King eigi erindi í hópinn þrátt fyrir það.
,,Hann vill spila fyrir England og hann myndi elska það að fá að spila á HM. Ég held að hann gæti farið, ef þú þarfnast hans þá verður hann þar," sagði Redknapp.
,,Ef þú missir John Terry eða Rio Ferdinand þá veistu að Ledley kemur inn og stendur sig."
,,Hann er klár, þú veikir ekki liðið með honum. Ef að liðið er í undanúrslitum og einhver er í leikbanni þá getur hann komið inn, hann er frábær leikmaður."
,,Ledley er sérstakur það er þess vegna sem að ég nota hann þegar að hann er heill. Hann mun ekki spila á miðvikudag, hnéð hans verður ekki búið að jafna sig þá en í næstu viku nota ég hann."
,,Ég sé hann aldrei fyrr en á föstudögum, hann vinnur með sjúkraþjálfurunum. Hann æfir ekki en samt er hann nógu góður fyrir England."


