Þá er komið að ,,Íslenska netrúntinum." Þar rennir Fótbolti.net yfir síður íslensku félaganna, stuðningsmannasíður og aðrar síður sem tengjast fótbolta og skoðar athyglisvert efni. Um er að ræða nýjan fastan lið á Fótbolta.net og lesendur mega endilega senda ábendingar um efni á [email protected].
Igor Pesic kemur á Skagann í vikunni:
Igor Pesic er kominn með dvalarleyfi á Íslandi og mun koma á Akranes í vikunni til að hefja æfingar með ÍA. Pesic lék með ÍA undir lok síðasta tímabils en þessi knái miðjumaður var einnig hjá liðinu árið 2005 og 2006.
Sjá fréttina í heild: Igor Pesic kominn með dvalarleyfi og er væntanlegur á Skagann
Svipmyndir úr leik Fjölnis og Leiknis:
Á heimasíðu Fjölnis er hægt að skoða myndbandsbrot úr leik liðsins gegn Leikni í Reykjavíkurmótinu á dögunum en leikurinn fór 2-2 þar sem að Fjölnismenn jöfnuðu undir blálokin.
Sjá fréttina í heild: Leiknir-Fjölnir, brot af því besta
Fleiri myndbönd úr Reykjavíkurmótinu:
Sporttv.is hefur sýnt frá leikjum í Reykjavíkurmótinu að undanförnu. Á Sporttv.is er hægt að skoða allan leik Fjölnis og Leiknis sem og allan leik Fylkis og Fram sem fór 3-3.
Sjá fréttina í heild: Myndbönd úr Reykjavíkurmótinu
ÍBV fær enskan þjálfara:
ÍBV auglýsti á dögunum eftir þjálfurum fyrir yngri flokka í fótbolta þar sem að erfiðlega hefur gengið að manna flokkana í þjálfun. Eyjamenn leituðu erlendis og hafa núna fengið Michael White, 41 árs þjálfara frá Englandi til að taka að sér þjálfun í 3,6 og 7.flokki drengja og 4.flokk kvenna. Michael hefur áður þjálfað hjá Newcastle sem og á Möltu og í Bandaríkjunum.
Sjá fréttina í heild: ÍBV með liðsstyrk í þjálfuninni

