Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mán 08. febrúar 2010 10:59
Davíð Örn Atlason
Heimild: Sky 
Van Gaal hafnar að taka við Nígeríu
Louis van Gaal, knattspyrnustjóri Bayern Munchen, hefur hafnað því að taka við landsliði Nígeríu en hann hefur ekki útilokað að taka við landsliði síðar meir.

Þessi fyrrum stjóri Ajax stýrði hollenska landsliðinu í tvö ár í byrjun þessarar aldar en eftir það þjálfaði hann Barcelona og AZ Alkmaar.

,,Ég fékk tilboð frá Nígeríu, en ég hafnaði því," sagði van Gaal við Liga total television.

,,Þetta var ekki í fyrsta skiptið sem ég hafði fengið tilboð frá Nígeríu en mér finnst Bayern vera stór áskorun fyrir mig."

,,Ég held að Bayern geti verið síðasta félagsliðið mitt. Ég vil taka þátt í Heimsmeistaramóti."
Slapp
banner
banner
banner