Heimild: AFP
Carlo Ancelotti, knattspyrnustjóri Chelsea, sagði eftir leik liðsins við Arsenal í gær að liðið hafi átt 2-0 sigurinn fullkomlega skilið. Didier Drogba skoraði bæði mörk Chelsea en Arsenal átti líka sín færi.
,,Við vorum vel stefndir af því að við viljum vinna deildina og hina titlana. Það er það eina sem við eigum að stefna að," sagði Ancelotti.
,,Við gerðum frábærlega í vörninni. Við reyndum að skora fleiri mörk en við unnum saman í 90 mínútur. Stundum verður maður að verjast."
,,Arsenal spilaði frábæran sóknarbolta svo þetta var ekki létt. Kannski voru þeir meira með boltann en við en það er ekki fótbolti. Fótbolti snýst um sókn, vörn og úrslit líka. Við áttum sigurinn skilið."




