Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mán 08. febrúar 2010 16:36
Alexander Freyr Tamimi
Heimild: Sky 
Gerrard: Verðum að byggja ofan á sigurinn gegn Everton
Steven Gerrard fyrirliði Liverpool hvetur liðsfélaga sína til að byggja ofan á sigurinn gegn Everton um helgina og tryggja sér eitt af fjórum efstu sætum ensku úrvalsdeildarinnar á tímabilinu.

Liverpool hefur sýnt ágætis stöðugleika undanfarnar vikur og tryggðu þeir sér 1-0 sigur gegn erkifjendunum þrátt fyrir að vera manni færri meiri hluta leiksins. Vonast Gerrard til að baráttan úr seinasta leik verði tekin með í næsta leik sem er gegn Arsenal á miðvikudag.

,,Maður nýtur þess alltaf að sigra nágranna sína en það sem gladdi mig mest var hvernig við unnum leikinn, sérstaklega eftir að hafa misst mann útaf eftir hálftíma," sagði Gerrard við Liverpool Echo.

,,Mér fannst við sýna frábæran karakter, stórkostlegt hugarfar og svo fannst mér við spila vel á tímum. Mér fannst þetta fullkomlega verðskuldaður sigur."

,,Þú gast séð hversu mikilvægt þetta var fyrir alla á vellinum þegar þessu var lokið og það var eins í búningsklefanum. Allir voru í skýjunum."

,,Nú þurfum við að taka þetta með í næsta leik. Þetta verður erfiður leikur, þannig er það alltaf gegn Arsenal á útivelli. En við munum nota sigurinn gegn Everton sem stökkpall líkt og við höfum gert áður. Við viljum halda áfram að vinna og gera betur en við höfum verið að gera."


Laugardagurinn var frábær dagur fyrir Liverpool þar sem Manchester City tapaði gegn Hull síðar um daginn auk þess sem Tottenham gerði markalaust jantefli við Aston Villa. Liverpool er því enn í 4. sætinu sem stendur en þeir eru þó hvergi nærri því að vera öruggir með Meistaradeildarsæti.

,,Við vitum að það er ennþá langur vegur framundan og við viljum vera vissir um að enda í fjórða sæti eða ofar á tímabilinu," sagði Gerrard.

,,Það er frammistaða líkt og um helgina sem kemur manni þangað. Við verðum að halda þessu áfram og við höfum ekki efni á að misstíga okkur."

,,Tottenham, Manchester City og Aston Villa halda á okkur pressunni og það eru margir erfiðir leikir framundan. En ef við getum sýnt okkar bestu hliðar líkt og í undanförnum sex leikjum sé ég ekki af hverju við ættum ekki að geta haldið áfram á góðu skriði."
Slapp
banner
banner