Heimild: Svenska fans
Hjálmar Jónsson skoraði þriðja mark IFK Gautaborg þegar að liðið sigraði danska liðið Álaborg 3-1 í æfingaleik um helgina.
Hjálmar skoraði með fallegu skoti beint úr aukaspyrnu en markið kom undir lok leiksins.
Theodór Elmar Bjarnason var valinn maður leiksins hjá Gautaborg en hann fær sex í einkunn af sjö mögulegum á heimasíðunni Svenskafans.
Hjálmar fékk 5,5 í einkunn sem og Ragnar Sigurðsson en þeir léku saman í miðri vörn Gautaborg.




