Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   mán 08. febrúar 2010 14:01
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sporting Life 
Ricardo Fuller handtekinn út af árás á næturklúbbi
Ricardo Fuller, framherji Stoke, var handtekinn um helgina en hann er sakaður um að hafa ráðist á 21 árs gamlan mann á nætturklúbbnum JFK.

Maðurinn meiddist lítillega á andliti en þurfti ekki að fara á sjúkrahús vegna meiðslanna.

Atvikið átti sér stað klukkan 1 aðfararnótt sunnudags en Fuller var að skemmta sér eftir 3-0 sigur Stoke á Blackburn á laugardeginum.

Fuller, sem er þrítugur, mun þurfa að koma aftur til lögreglunnar í næsta mánuði þar sem að hann verður yfirheyrður.

Fuller hefur ekki verið í stuði á þessari leiktíð en hann hefur einungis skorað eitt mark með Stoke eftir að hafa skorað ellefu mörk á síðasta tímabili.
Slapp
banner
banner