Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mán 08. febrúar 2010 14:00
Alexander Freyr Tamimi
Heimild: Sky 
Cech: Arsenal er ekki lengur í titilbaráttunni
Petr Cech.
Petr Cech.
Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson
Petr Cech markvörður Chelsea telur að 2-0 sigur liðsins á Arsenal hafi sent þá síðarnefndu endanlega úr titilbaráttunni.

Tvö mörk frá Didier Drogba tryggðu Chelsea stigin þrjú og sendu þá aftur á toppinn og eru þeir nú með níu stiga forskot á Arsenal. Cech, sem hélt hreinu marki í sínum 200. leik í þessum sigri, er einnig viss um að þeir bláu geti tekið titilinn af Manchester United.

,,Þetta hefði ekki getað farið betur. Við unnum gríðarlega mikilvægan sigur, ég hjálpaði liðinu með nokkrum markvörslum og hélt auk þess hreinu í 100. skiptið," sagði Cech.

,,Ég held að við höfum endað titilbaráttu Arsenal með þessum sigri og þeir munu eiga mjög erfitt með að ná upp þessu níu stiga forskoti, sérstaklega þar sem þeir eiga marga erfiða leiki eftir."
Slapp
banner
banner
banner