Heimild: Sky
David Beckham leikmaður LA Galaxy sem er í láni hjá AC Milan og fyrrum leikmaður Manchester United segir að hann mun ekki fagna ef hann skorar gegn liðinu.
Liðin mætast í 16 liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu og er fyrri leikurinn í næstu viku.
,,Stundum taka tilfinningarnar yfir þegar þú skorar en ég mun ekki fagna. Ég virði stuðningsmennina og félagið," sagði Beckham.
,,Sambandið sem ég á við stuðningsmennina er mér mikilvægt. Ég fór í gegnum erfiðleika en þeir hættu aldrei að styðja mig."
,,Ég hefði ekki komist í gegnum allt án þeirra. Fyrir mér eru þeir bestu stuðningsmenn í heimi og stuðningurinn sem ég fékk í hverri viku var ótrúlegur."

