Heimild: Heimasíða Víkings Ó.
Víkingur Ólafsvík samdi í gær við sóknarmanninn Aleksandrs Cekulajevs og hann mun leika með liðinu í annarri deildinni í sumar.
Aleksandrs hefur verið á reynslu hjá Víkingi að undanförnu en hann skoraði þrennu í æfingaleik gegn Ými á dögunum og hann skoraði einnig þrennu gegn Ægi í gær.
Þessi 25 ára gamli leikmaður var fyrr í vetur til reynslu hjá ÍBV en Eyjamenn ákváðu að semja ekki við hann.
Aleksandrs kemur frá Lettlandi en hann spilaði áður með FkJurmala-VV í heimalandinu.
Aleksandrs flaug í morgun til Lettlands þar sem hann mun dvelja fram að mánaðarmótum eða þar til hann snýr aftur til Íslands og byrjar að æfa að nýju með Víkingi.