Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   mán 08. mars 2010 20:29
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sporting Life 
Moyes: Arteta að nálgast sitt besta form að nýju
David Moyes, stjóri Everton, telur að spænski miðjumaðurinn Mikel Arteta sé að nálgast sitt gamla form.

Arteta skoraði tvívegis í 5-1 sigri Everton á Hull City í gær en þessi 27 ára gamli leikmaður byrjaði að leika að nýju í janúar eftir ellefu mánaða fjarveru vegna hnémeiðsla.

,,Hann skoraði tvö mjög góð mörk og lék heilt yfir vel," sagði Moyes.

,,Mikel er ekki orðinn jafn öflugur og hann var en í dag (í gær) fannst mér hann líkjast sjálfum sér meira og sýna af hverju við höfum saknað hans síðasta árið."

,,Það gæti tekið svolítinn tíma fyrir hann að ná fullum styrk aftur en hann gerði marga góða hluti með boltann."

Slapp
banner
banner
banner