Heimild: Goal.com
mætir ekki sínum gömlu félögum
Karim Benzema mun ekki ná fullum bata fyrir leik Real Madrid gegn Lyon í Meistaradeild Evrópu á miðvikudaginn.
Þessi fyrrum framherji Lyon kom við sögu í fyrri leik liðanna í Frakklandi og spilaði þá síðustu 27 mínútur leiksins.
Samkvæmt heimildum á Spáni er Benzema ennþá að jafna sig eftir kviðsslit og mun því missa af leiknum á miðvikudaginn sem og viðureign Real Madrid gegn Real Valladolid á útivelli um næstu helgi.
Benzema er hins vegar talinn líklegur til að snúa aftur þegar Real Madrid mætir Sporting Gijon, 20. mars.





