Kristinn Jakobsson, FIFA-dómari, mun á þriðjudögum svara spurningum lesenda Fótbolta.net sem snúa að dómgæslu.
Kristinn mun svara spurningum lesenda á þriðjudögum en spurningar má senda á [email protected].
Hér að neðan má sjá spurningarnar sem Kristinn svarar í þessari viku.
Smellið hér til að sjá eldri fyrirspurnir
Kristinn mun svara spurningum lesenda á þriðjudögum en spurningar má senda á [email protected].
Hér að neðan má sjá spurningarnar sem Kristinn svarar í þessari viku.
Smellið hér til að sjá eldri fyrirspurnir
Heyrðu ég lenti í ansi skringilegu atviki í leik sem ég dæmdi um daginn, En þannig er mál með vexti að annað liðið er komið á vallarhelming hins liðsins og er í blússandi skyndisókn þegar einn leikmaður varnarliðsins ælir á völlinn, hann leggst ekki niður heldur stendur ennþá, nokkrir leikmenn liðsins stoppa krefjast þess að leikurinn verði stoppaður og á meðan skorar sóknarliðið. Upp hófust þá miklar deilur á milli mín, þjálfara og leikmanna varnarliðsins og þetta var mikið rætt, þjálfarinn vildi meina að um höfuðmeiðsli væri að ræða, en það var ekkert högg sem leiddi til þess að leikmaðurinn ældi. Mín spurning er þá einfaldlega sú, Hvað skal gera ef leikmaður ælir á völlinn í leik?
Kv Jóhann
Sæll Jóhann.
Þetta er skemmtileg spurning.
Ég er sannfærður um að ég hefði tekið ákvörðun um að halda leik áfram og ekki stöðva upplagt markfæri hjá sóknarliðinu - en samkv. mörgum ábendingum frá læknum og sjúkraþjálfurum þá vilja þeir að leikur sé stöðvaður umsvifalaust þegar um sýnilega alvarleg meiðsli(höfuð) er að ræða. Auðvitað erum við dómarar ekki læknar og þess frekar eigum við ekki að taka valdið og meta hvort allt sé í lagi með leikmann sem meiðist eða sýnist meiddur, heldur eigum við að kalla til lækni/sjúkraþjálfar liðsins til að meta ástandið þegar tækifæri gefst.
En þetta er alltaf mat dómarans í hvert skipti hvenær á að stöðva leik vegna meiðsla/veikinda. Dómarar eiga alltaf að hugsa um að vinna með leiknum - leikmönnum - forráðamönnum og gæta að hagsmunum þeirra. En til að svara spurningu þinni þá tel ég sýnt að leikamður sem finnur til einhverja óþægindi verði að gefa STRAX til kynna að hann er óleikfær, það er á ábyrgð hans ,samherja hans og forráðamanna.
kv.
KJ
Sælir
Aston Villa fékk vítaspyrnu þegar Vidic braut á Gabriel Agbonlahor í byrjun leiksins en ekkert spjald fór á loft, átti Vidic að fá rautt spjald?
Kv
Elvar Sig
Sæll Elvar.
Að mínu mati eftir að hafa séð leikbrotið í sjónvarpinu þá verskuldaði það brottvísun. Leikmaður Aston Villa var greinilega kominn í upplagt markfæri og Vidic rændi honum því með því að brjóta á Agbonlahor - þannig samkv. knattspyrnulögunum þá ber að vísa leikmanni af leikvelli sem rænir andstæðingi upplögðu markfæri. Þetta er mitt mat á atvikinu samkv. sjónvarpsupptökum.
kv.
KJ
Sæll Kristinn
Mig langar til að spyrja einnar spurningar um hagnaðarregluna svokölluðu og túlkun hennar.
Lið A er í sókn, leikmaður þess skýtur boltanum í hendina á liðsfélaga, boltinn skýst þaðan til baka niður völlinn og framherji liðs B hirðir boltann, rekur upp völlinn og skorar.
Þetta er sennilega ekki atvik sem haft var i huga við setningu hagnaðarreglunnar en myndi þetta ekki falla innan hennar?
Hallór Brynjar Halldórsson
Sæll Halldór.
Ég myndi telja að þarna ætti markið að standa - Það er alls ekki vilji eða ásetningur samherja að spyrna knetti í hendi liðsfélaga síns - þannig að það er rétt mat að láta leikinn halda áfram ekki síst miðað við lýsingu þína á atburðarrásinni þá er það besta í stöðunni að láta leikinn halda áfram. Það á heldur ekki að vera þannig að brotlega liðið hagnist á brotinu - heldur þveröfugt.
kv.
KJ
Herra minn
Ég varð vitni að því í 3.deild karla fyrir nokkrum misserum síðan að dómarinn dæmdi leikmann annars liðsins rangstæðan, án þess að aðstoðardómarinn (línuvörður) hafi gefið dómara leiksins merki um rangstöðu. Ég túlka þetta þannig að dómarinn hafi tekið fram fyrir hendurnar á aðstoðardómaranum, því hver sér betur merki um rangstöðu en aðstoðardómarinn. Ég hef aldrei séð í nútíma fótbolta, dómara gera þetta með þessum hætti.
Má dómarinn dæma rangstöðu, þó svo að það séu engin merki frá aðstoðardómaranum um rangstöðuna og þurfa dómarar ekki að fara eftir því ef aðstoðardómarar gefa merki um brot almennt?
Sigurvin Guðmundsson
Sæll Sigurvin.
Eins og nafnið gefur til kynna þá er aðstoðardómari til aðstoðar við dómara leiksins en endanlegt mat og framkvæmd er alltaf dómarans. Það getur verið að aðstoðardómarinn hafi ranglega að mati dómarans dæmt þessa rangstöðu og því hafi dómarinn ákveðið að hunsa aðstoðardómarann og dæma frekar eftir sinni sannfæringu. Aðalmálið í dómgæslu er að taka réttar ákvarðanir og skiptir þá ekki hvort það sé aðstoðardómarinn eða dómarinn sem tekur ákvörðunina, en endaleg ákvörðun er alltaf dómarans. Það hefur einnig margoft gerst í neðri deildum að aðstoðardómarar eru oft reynslulitlir og jafnvel ekki nógu góðir til að vega og meta einfalda hluti, þá verður dómarinn sem oftast er reyndari að taka ábyrgðina og ákvörðunina um rangstöðumat.
En klárlega í framtíðinni munum við sjá mun betri gæði í dómgæslu á öllum stigum.
kv.
KJ
Smá spurning hérna, mér finnst svakalegt að lesa þetta svar frá Kidda um þetta brot hjá Shawcross og hvernig hann útskýrir vel fyrir okkur lesendum af hverju hann átti skilið þetta rauða spjald. Fyrir nokkrum árum var maður að nafni Páll Hjarðar sem að gjörsamlega slátraði einum leikmanni í leik á Íslandsmótinu með þeim afleiðingum að leikmaðurinn tvíökklabrotnaði og er hans ferli nú í dag lokið.Flestar ef ekki allar og jafnvel fleiri lýsingar sem að Kiddi gefur upp um af hverju Shawcross átti að fá rautt eiga svo sannarlega við í tilfellinu sem að Kiddi var sjálfur við stjórnvölin, en hvernig skildi Kiddi hafa tekið á þessu sjálfur? Jú hann gaf leikmanninum GULT spjald. Alveg eins og ég sendi hér ekki undir nafni, þá er það sama með íslenska dómara, þeir vita allt og kunna allar reglur, en hafa svo ekki pung í stórar ákvarðanir. Væri gaman að fá dómara til að svara einhverju um gróf brot, vafasöm atriði og fleira sem að hefur gerst á Íslandi. Það er af nógu að taka.
Sæll [email protected]
Það er alltaf gaman að fá svona spurningar eða tilvitnanir.
Til að svara fyrir brotið hjá Shawcross þá vitna ég í spurningu sem ég hef áður svarað og nefni aftur að það brot réttlætir ekkert annað en rautt spjald.
Varðandi tilvitnun í hræðilegt brot sem var framið af leikmanninum Páli Hjarðar leikmanni ÍBV á Ingva Guðmundssyni leikmanni Keflavíkur þá vil ég svara eftirfarandi.
Ég hef aldrei leynt því að ég hafi ekki tekið rétta ákvörðun í því broti og hef heldur aldrei leynt því að leikmaður ÍBV hafi réttilega átt að vera vísað af leikvelli fyrir mjög grófan leik. Það sem gerðist í því atviki frá minni sjónlínu var að ég hreinlega sá ekki nógu vel leikbrotið til að meta rétt en sá að hraðinn og ákefðin á leikmanni ÍBV var alltof mikill, en hvernig hann lendir á leikmanni Keflavíkur sá ég ekki nægilega vel til að framkvæma brottvísun - mitt mat á brotinu þegar það gerist var áminning en eftir að hafa séð sjónvarpsupptöku af leiknum þá klárlega brást ég ekki rétt við mjög grófu leikbroti. Ég hef aldrei leynt því að hafa gert mistök í þessu leikbroti og til að upplýsa þá var ég mjög sár og svekktur yfir því að hafa ekki gert rétt. Ég var í sambandi við leikmann og forráðamenn Keflavíkur eftir leikinn og allir hlutaðilar vissu um hug minn. En til skýringa fyrir spyrjandan þá hefði brotið ekkert breyst við áminningu eða brottvísun, dómarar eru til þess að dæma leikinn og það þýðir að þeir taka ákvörðun eftir að leikmenn gerast brotlegir. Svo er alltaf hægt að reyna réttlæta niðurstöðu dóma. Eins til upplýsinga fyrir spyrjandan þá erum við dómarar á Íslandi alls ekki fullkomnir og þess þá heldur yfir gagnrýni hafnir, við gerum mistök eins og allir aðrir í knattspyrnu, þjálfarar, leikmenn og forráðamenn. Það er hagur okkar allra að fækka mistökum til að gæða knattspyrnuna og þá verða menn að taka höndum saman allir sem einn og vinna að settum markmiðum. Markmið dómara eru skýr að vera eins lítt áberandi eins og mögulegt er og láta leikmenn njóta sín, knattspyrnan verður að vera leikinn samkv.
knattpyrnulögunum og það er okkar að reyna að túlka þau á sem faglegasta hátt. Enginn er sáttur við mistök.
Með knattspyrnukveðju.
KJ
Ég hef verið að velta fyrir mér þessari reglu þar sem leikmanni er vikið af velli fyrir að ræna andstæðing augljósu marktækifæri. Ef brot er innan teigs og vítaspyrna er dæmd þá skil ég ekki hvernig hægt er að fá það út að leikmaður sé rændur "augljósu marktækifæri" Því ef vítaspyrna er ekki augljóst marktækifæri þá veit ég ekki hvað er. Ég er þeirrar skoðunar að dæma vítaspyrnu sé nægjanleg refsing en að dæma víti og reka leikmann af velli sé óhófleg refsing.
Með kveðju,
Hafsteinn Gunnarsson
Sæll Hafsteinn.
Það skiptir ekki máli hvort brotið sé innan eða utan vítateigs ef varnarmaður/markmaður rænir sóknarmanni upplögðu markfæri þá samkv.
knattspyrnulögunum ber að vísa þeim brotlega af leikvelli. Ég skil vel þessa pælingu þína og hef margoft velt fyrir mér réttlætingunni en hef svo oftast skilið hana þegar maður hefur séð brot dæmt innan vítateigs,vítaspyrna dæmd og leikmanni vikið af leikvelli og svo ver markmaðurinn vítaspyrnuna - þá spyr maður sig að því hvort það hafi verið næg refsing að dæma bara vítaspyrnuna og vísa ekki varnarmanninum af leikvelli, því sá brotlegi getur líka verið markmaðurinn, fær gult spjald fyrir að ræna sóknarmanni upplögðu markfæri, dæmd vítaspyrna og svo ver hann spyrnuna, þá er markmaðurinn að hagnast á broti sínu... Reyndar er verið að fjalla ítarlega um þessa reglu hjá Alþjóða knattspyrnureglunefndinni og þar hafa komið fram tillögur um að breyta þessari reglu í "víti og gult spjald" - ég hef ekki heyrt um að breyting hafi farið í geng en það kemur í ljós á næstunni.
kv.
KJ


