Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   mán 08. mars 2010 14:13
Magnús Már Einarsson
Heimild: BBC 
Cesc Fabregas ekki með Arsenal á morgun
Cesc Fabregas verður ekki með Arsenal gegn Porto í síðari leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar á morgun.

Fabregas meiddist aftan í læri í 3-1 sigri Arsenal á Burnley um helgina og hann gat af þeim sökum ekki æft í dag.

Arsene Wenger, stjóri Arsenal, hefur núna ákveðið að láta Fabregas ekki spila á morgun.

,,Við getum ekki tekið áhættuna svo að hann verður ekki með," sagði Wenger.

Arsenal tapaði fyrri leiknum gegn Porto 2-1 og liðið þarf því að skora á morgun til að eiga möguleika á að komast áfram í 8-liða úrslitin.
Slapp
banner
banner
banner