Heimild: Sky
Belgíski bakvörðurinn Marnick Vermijl er á leið til Manchester United en þetta segir faðir leikmannsins.
Hinn 18 ára gamli Vermijl náði að hrífa Sir Alex Ferguson stjóra Manchester United og Ole Gunnar Solskjaer varaliðsþjálfara þegar að hann var á reynslu hjá Englandsmeisturunum á dögunum.
Vermijl getur leikið bæði sem hægri og vinstri bakvörður en hann mun gera þriggja ára samning við United á næstunni og þá mun félag hans Standard Liege fá 300 þúsund evrur.
,,Þeir sögðu að hann væri besti hægri eða vinstri bakvörður sem þeir höfðu séð í mörk ár," sagði Dirk Vemijl faðir leikmannsins.
,,Ferguson sagði mér að Marnick eigi eftir að verða leikmaður í aðalliðshópi Manchester United á næstu árum."



