Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mán 08. mars 2010 16:15
Magnús Már Einarsson
Ekki náðist samkomulag um leikdaga - Dregið í næstu viku
Mynd: Fótbolti.net - Vilhjálmur Siggeirsson
Fulltrúar þjóða sem leika í H riðli í undankeppni EM 2010 hittust í Kaupmannahöfn í dag þar sem að fundað var um leikdaga í riðlinum.

Ekki náðist samkomulag á milli þjóðanna og því mun UEFA sjá um að draga um leikdaga en líklegt er að dregið verið þriðjudaginn 16.mars.

,,Það voru allir með einhverjar ákveðnar óskir og það náðist ekki samkomulag þannig að þetta varð niðurstaðan," sagði Þórir Hákonarson framkvæmdastjóri KSÍ við Fótbolta.net í dag.

,,Þetta strandaði ekki á neinu sérstöku. Stundum er þetta bara svona."

Þjóðirnar í H-riðli eru ásamt Íslendingum: Portúgal, Danmörk, Noregur og Kýpur en fyrstu leikirnir verða í september á þessu ári.
Slapp
banner
banner