Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   mán 08. mars 2010 18:45
Magnús Már Einarsson
Ekki öruggt að Ribery verði með Bayern á morgun
Ekki er ljóst hvort að Franck Ribery verði með Bayern Munchen gegn Fiorentina í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar annað kvöld en Bayern er með 2-1 forskot eftir fyrri viðureign liðanna.

Ribery hefur verið að glíma við meiðsli og var af þeim sökum ekki í byrjunarliðinu í 1-1 jafntefli gegn Köln um helgina.

,,Ribery er með smávægilegt vandamál. Ég held að hann geti spilað en við sjáum til á morgun," sagði Louis van Gaal þjálfari Bayern.

Arjen Robben var ekki með Bayern um helgina vegna flensu en hann verður klár á morgun.

Hins vegar eru vandræði í vörn Bayern en Martin Demichelis og Diego Contento verða ekki með sem þýðir að David Alaba, 17 ára gamall miðjumaður frá Austurríki, gæti byrjað í vörninni.
Slapp
banner
banner