Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   mán 08. mars 2010 18:17
Hörður Snævar Jónsson
Heimild: Sky 
Bruce hrósar eiganda Sunderland
Steve Bruce stjóri Sunderland hrósar Ellie Short eiganda félagsins mikið.

Sunderland hefur ekki verið að spila vel undanfairð og hefur ekki unnið í deildinni í 15 leikum í röð.

Short setti 48 milljónir punda í félagið síðasta sumar og keypti félagið til að mynda Darren Bent, Lee Cattermole, Michael Turner og Lorik Cana.

,,Það sem eigandinn hefur gert á síðustu tólf mánuðunum er ekkert nema frábært. Hann hefur sýnt mikinn stuðning," sagði Bruce.

,,Allir í fótbolta vilja hafa eiganda og stjórnarformann eins og ég hef, þetta hefur ekki verið gaman fyrir neinn."

,,Þegar ekkert gengur þarftu stuning eiganda og stjórnarmanna og það hefur ekki vantað, þeir hafa báðir verið frábærir."

,,Ég verð að hrósa þeim og sérstaklega eigandanum, það sem hann hefur gert fyrir félagið á stuttum tíma er frábært."

,,Hann gerir allt af mikilli fagmensku, hann fer ekki í blöðin og gargar og ég hrósa honum fyrir það."

Slapp
banner
banner
banner
banner