Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   mán 08. mars 2010 21:17
Hafliði Breiðfjörð
FH fær norskan framherja á reynslu
Norskur framherji æfir með FH í vikunni og spilar æfingaleik gegn Breiðablik á föstudag.
Norskur framherji æfir með FH í vikunni og spilar æfingaleik gegn Breiðablik á föstudag.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Norski framherjinn Torger Motland kom hingað til lands í dag og mun æfa með Íslandsmeisturum FH fram á laugardag.

Þetta staðfesti Lúðvík Arnarson varaformaður knattspyrnudeildar FH við Fótbolta.net í kvöld.

Motland verður 25 ára gamall 26. mars næstkomandi.

Hann hefur að undanförnu verði á mála hjá Stavanger IF í heimalandi sínu en það lið endaði í 15. og næst neðsta sæti norsku 1. deildarinnar á síðustu leiktíð.

Áður hefur hann leikið með Viking í Stavanger, Riska FK, Sadnes, Ulf og Bryne þar sem hann var á láni tímabilið 2005-2006.

Hann mun spila með FH í æfingaleik gegn Breiðablik á föstudagskvöld.
Slapp
banner
banner
banner