Heimild: KRReykjavik.is
,,Maður kaupir nefnilega ekki hjartað og sálina í liði og hvað þá titillinn!''
Stuðningsmenn KR eru ekki allir á eitt sáttir við stefnu félagsins í leikmannamálum og vilja að ungir uppaldir leikmenn fái frekar tækifæri en aðkeyptir. Fjallað er um þetta á háðslegan hátt í grein á vef stuðningsmannana í kvöld.
Eins og við sögðum frá fyrr í kvöld er Guðjón Baldvinsson að ganga til liðs við KR að nýju frá GAIS í Svíþjóð en hann er annar framherjinn sem kemur til félagsins á stuttum tíma, áður kom Kjartan Henry Finnbogason frá Sandefjord og þá hafði Viktor Bjarki Arnarsson komið frá Lilleström.
Stuðningsmenn KR hafa lengi barist fyrir því að fleiri heimamenn fái tækifæri í liðinu og á vef stuðningsmanna félagsins í kvöld er ádeila á leikmannakaupin.
Þar er grein sem ber heitið ,,Björgum þeim," en í henni eru á háðslegan hátt taldir upp tíu leikmenn sem eiga að vera á leið til félagsins með þessum skilaboðum: ,,Ungu strákarnir okkar munu án ef læra heilan helling á að fylgjast með þeim af hliðarlínunni."
Til viðbótar er bent á að stuðningsmenn Portsmouth gætu verið á lausu og geti fengist á gjafaverði enda félagið að berjast við að bjarga sér frá gjaldþroti. Niðurlag greinarinnar endar svo á þessum ummælum: ,,...en eitt er víst að ekki er allt fallt fyrir peninga. Maður kaupir nefnilega ekki hjartað og sálina í liði og hvað þá titillinn!"
Smelltu hér til að lesa greinina




