Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   þri 09. mars 2010 08:20
Magnús Már Einarsson
Guðmundur Benediktsson spáir í Meistaradeildina
Keppni í Meistaradeild Evrópu heldur áfram í kvöld eftir viku hlé en þá fara fram tveir leikir í 16-liða úrslitunum. Arsenal mætir Porto en síðarnefnda liðið er með 2-1 forskot eftir fyrri leikinn. Fiorentina tekur síðan á móti FC Bayern en Þjóðverjarnir eru með 2-1 forskot eftir fyrri leikinn þar.

Guðmundur Benediktsson og Hjörvar Hafliðason eru sérfræðingar Fótbolta.net í Meistaradeildinni. Hér að neðan má sjá spá Guðmundar fyrir leikina í kvöld en hann býst við að annar leikurinn fari í vítaspyrnukeppni og hinn í framlengingu.

Arsenal 2 - 1 Porto
Þessi er nokkuð snúinn. Ég spáði Arsenal áfram síðast en nú er komið á daginn að Fabregas verður ekki með í þessum leik og Aaron Ramsey líka. Þetta verður erfiðara fyrir Arsenal en menn halda. Ég ætla að spá því að þetta fari 2-1 fyrir Arsenal og úrslitin ráðist í vítaspyrnukeppni. Ég sé ekki í kristalkúlunni hvort að Hulk skori úr sínu víti eða ekki þannig að ég get ekki skorið úr um það hvort liðið fer áfram.

Fiorentina 2 - 1 FC Bayern (2-2 eftir framlengingu)
Bayern leiðir 2-1 þar naog það er eitthvað sem segir mér að það verði sama niðurstaða í Flórens. Þetta fer 2-1 og ræðst síðan í framlengingu þar sem að þýska liðið jafnar 2-2 og fer áfram. Þeir eru komnir á toppinn í Þýskalandi þar sem að þeir eiga heima og þeir nýta sér meðbyrinn og stökkva inn í 8-liða úrslitin. Thomas Mueller kemur af bekknum og skorar markið í framlengingunni.
Slapp
banner