Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   þri 09. mars 2010 06:00
Davíð Örn Atlason
Heimild: Sporting Life 
Carlton Cole óttaðist að vera seldur frá West Ham
Carlton Cole, leikmaður West Ham bjóst við því að yfirgefa félagið í janúar áður en að nýjir eigendur fjárfestu í félaginu.

Cole talar mjög vel um eigendurna David Gold og David Sullivan og segir að þeir séu að standa sig mjög vel.

,,Það var allt í rugli áður en þeir komu. Það leit allt út fyrir að félagið þyrfti að selja marga af betri leikmönnum sínum," sagði Cole.

,,Gold og Sullivan komu inn og hreinsuðu allt. Þeir hafa staðið sig mjög vel og allir eru mjög einbeittir."

,,Það voru margir leikmenn orðaðir við för frá félaginu og það var mjög óþægilegt fyrir okkur alla. Það voru ekki bara byrjunarliðsmenn, heldur allir aðrir."
Slapp
banner