Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   þri 09. mars 2010 06:00
Davíð Örn Atlason
Heimild: Sporting Life 
David Beckham spenntur fyrir því að mæta aftur á Old Trafford
David Beckham segist vera spenntur fyrir því að spila með AC Milan á Old Trafford gegn Manchester United á morgun.

Beckham, sem er á láni hjá Milan frá Los Angeles Galaxy er að fara að spila í fyrsta skipti gegn United á Old Trafford, en hann lék þar í mörg ár við góðan orðstír.

,,Ef ég spila á miðvikudaginn þá verð ég ekki hræddur, en ég verð spenntur af því að ég spilaði á þessum leikvangi í mörg ár og ég veit hvernig það er að spila fyrir Manchester United," sagði Beckham.

,,Ég veit hvernig það er fyrir andstæðingana að spila hérna," bætti Beckham við en hann býst við að Wayne Rooney, framherji United verði með en sá enski hefur átt við meiðsli að stríða.

,,Ég er viss um að Rooney verði með. Ég held hann hafi verið eitthvað að kvarta undan meiðslum að undanförnu en hann fékk alla helgina til þess að jafna sig á þessum meiðslum."

,,Hann er virkilega góður leikmaður og hann vill taka þátt í leiknum. Alex Ferguson vill klárlega nota sína bestu leikmenn."

Slapp
banner