Heimild: Sky
John Terry, fyrirliði Chelsea hefur hrósað Alex, liðsfélaga sínum í hástert og segir að hann hafi gefið knattspyrnustjóranum Carlo Ancelotti jákvætt vandamál í liðsvali þar sem að Alex hefur staðið sig svo vel í fjarveru Ricardo Carvalho.
,,Það er frábært að sjá hvernig hann hefur komið inn og staðið sig svona gríðarlega vel," sagði Terry.
,,Hann er ekki í byrjunarliðinu vanalega en svo kemur hann inn og stendur sig frábærlega. Hann tók tvær glæsilegar tæklingar í leiknum (gegn Stoke um helgina), sérstaklega á Tuncay."
,,Það er undir okkur Riccy (Carvalho) komið að halda sæti okkar í liðinu."
,,Riccy er að glíma við einhver meiðsli aftan í læri en hann verður vonandi kominn til baka innan skamms. Þegar að menn eins og Alex koma inn og standa sig svona vel þá gefur það stjóranum góðan hausverk."




