Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   þri 09. mars 2010 07:04
Davíð Örn Atlason
Heimild: Goal 
Wenger: Bendtner klúðrar ekki aftur svona mörgum færum
Nicklas Bendtner, framherji Arsenal átti ekki góðan dag þegar að liðið vann Burnley 3-1 á laugardaginn en sá danski klúðraði fjölmörgum dauðafærum.

Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal hefur hinsvegar ekki trú á því að Bendtner klúðri svona mörgum færum aftur.

,,Hann klúðraði mjög góðum færum á laugardaginn en allir ungir framherjar þurfa það einhverntímann. Hann lítur á hvað hann gerði vitlaust og gerir það rétt í næsta leik. Það er mikilvægt fyrir ungan framherja," sagði Wenger.

,,Ég tel gríðarlega mikilvægt að bæta sig á þessum tímapunkti. Þetta var bara einn leikur. Maður þarf alltaf að sýna sig og sanna í hverri einustu keppni."

,,Hann er mjög sterkur andlega og jafnvel þó hann hafi klúðrað þessum færum þá mun sjálfstraust hans ekki lækka í næsta leik."

Slapp
banner