Heimild: Soccerway
Theo Walcott, leikmaður Arsenal vonast til þess að glæsileg frammistaða hans gegn Burnley um helgina eigi eftir að þagga niður í gagnrýni fólks. Chris Waddle, fyrrum vængmaður Englendinga var ekki ánægður með Walcott í leik Englendinga og Egypta í síðustu viku og sagði hann ekki skilja leikinn. Walcott segist voða lítið hlusta á svona.
,,Ég hef lent í svo miklum meiðslum á þessari leiktíð og fólk gerir sér ekki grein fyrir því hversu erfitt er að koma til baka meiðsli eftir meiðsli," sagði Walcott.
,,Þú getur ekki verið í þínu besta formi um leið og ef þú heldur að þú getir það, þá setur þú meiri pressu a þig. Ég hef verið að gera það á þessari leiktíð."
,,Ég heyrði hvað hefur verið í gangi og hvað hann (Waddle) sagði, en ég hlusta ekki á fólk utan knattspyrnunnar. Ég hlusta á fólkið í kringum mig - stjórann (Arsene Wenger), herra Capello, fjölskylduna og fólkið í kringum mig."
,,Þetta angrar mig alls ekkert - kannski ef ég held áfram að standa mig svona mun það þagga niður í fólki."




