Heimild: BBC
Þá er komið að helsta slúðrinu úr enska boltanum en pakkinn er í boði Powerade.
Birmingham hefur áhuga á að fá Frederic Piquionne sem er í láni hjá Portsmouth frá Lyon. (Daily Mirror)
Sunderland er að skoða Jamie O'Hara miðjumann Tottenham sem er í láni hjá Portsmouth. (The Times)
Lokomotiv Moskva ætlar að gera aðra tilraun til að fá Roman Pavlyuchenko frá Tottenham í sumar. (Daily Mail)
Everton vonast til að ná að framlengja lánssamning Landon Donovan en samningurinn á að renna út eftir leikinn gegn Birmingham næsta laugardag. Everton ætlar þó ekki að eyðileggja gott samband sitt við LA Galaxy félag Donovan. (The Times)
Miroslav Stoch, miðjumaður Chelsea, er á óskalista Ajax og PSV Eindhoven. Þessi tvítugi leikmaður hefur farið á kostum með Twente í Hollandi í vetur en hann hefur skorað tíu mörk í 36 leikjum. (ImScouting)
William Gallas, varnarmaður Arsenal, gæti verið frá í mánuð í viðbót. Gallas meiddist um miðjan febrúar og síðan meiddist hann aftur á kálfa á æfingu á dögunum. (Daily Mail)
Gallas er til í að taka á sig launalækkun ef að hann getur framlengt samning sinn við Arsenal. (The Times)
Jeremie Aliadiere, framherji Middlesbrough, gæti misst af öllum leikjum sem eftir eru á tímabilinu eftir að hann tábrotnaði gegn Cardiff um helgina. (Daily Mail)
Knattspyrnustjórar í ensku úrvalsdeildinni eru að undirbúa mótmæli eftir að FIFA ákvað að skoða ekki þann möguleika að taka upp marklínutækni. (Daily Mirror)



