Heimild: Sky
Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, gæti átt yfir höfði sér ákæru frá enska knattspyrnusambandinu en talið er að hann hafi sýnt Andre Marriner dómara ,,V-merki" í 1-0 tapinu gegn Wigan í gærkvöldi.
Gerrard fékk að líta gula spjaldið fyrir tæklingu á James McCarthy á 81.mínútu og í kjölfarið öskraði hann á Marriner dómara og sjónvarpsmyndir sýna að miðjumaðurinn sýndi einnig ,,V-merki" en það þykir niðrandi í Bretlandi.
Marriner tók ekki eftir atvikinu en enska knattspyrnusambandið gæti tekið það fyrir.
Rafael Benitez, stjóri Liverpool, sagði eftir leikinn í gær að hann hefði ekki séð atvikið.
,,Ég veit það ekki, ég var of langt í burtu," sagði Benitez þegar að hann var spurður út í hegðun Gerrard.



