Andrew Mwesigwa, fyrrum leikmaður ÍBV, hefur gengið til liðs við félag í Kína.
Andrew, eða Siggi eins og hann var kallaður á Íslandi, hefur samið við félag að nafni Chongqing Lifan FC.
Þessi 25 ára gamli Úgandamaður yfirgaf ÍBV í október síðastliðnum en á sama tíma fór landi hans Augustine Nsumba einnig frá félaginu.
Siggi sem er varnar og miðjumaður lék með ÍBV frá 2006 til ársins 2009.
Alls skoraði Siggi tvö mörk í 67 leikjum á ferli sínum með Eyjamönnum en hann lék fimmtán leiki með liðinu síðastliðið sumar.



