Heimild: BBC
Steven Pienaar, miðjumaður Everton, hefur misst ökuleyfið í tólf mánuði eftir að hann var tekinn drukkinn undir stýri.
Þessi 27 ára gamli Suður-Afríkumaður var stöðvaður snemma morguns þann 21.febrúar, degi eftir 3-1 sigur Everton á Manchester United.
Áfengismagn í blóði hans var næstum tvisvar sinnum meira en leyfilegt er.
Auk þess að missa ökuleyfið þá fékk Pienaar sekt upp á þúsund pund. Þá þarf hann einnig að borga málskostnað upp á 100 pund.





