Heimild: Sporting Life
Jens Lehmann, markvörður Stuttgart, mun væntanlega leggja skóna á hilluna í sumar.
Þessi fertugi Þjóðverji ætlar í það minnsta að hætta hjá Stuttgart og leyfa Sven Ulreich og Alexander Stolz að berjast um stöðuna þar.
,,Að vera áfram færi ósanngjarnt gagnvart Sven Ulreich. Hann mun berjast við Alexander Stolz og þeim hlakkar til að kljást," sagði Lehmann.
Lehmann sagði á dögunum að hann gæti íhugað að fara aftur til Englands en eins og staðan er í dag er þó líklegast að skórnir fari upp á hillu.
,,Ég stefni á að hætta en maður veit aldrei. Ég nýt þess ennþá að spila fótbolta."



