Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   þri 09. mars 2010 14:42
Magnús Már Einarsson
Heimild: BBC 
Wes Brown frá keppni í fjórar til sex vikur
Wes Brown, varnarmaður Manchester United og enska landsliðsins, verður frá keppni næstu fjórar til sex vikurnar vegna meiðsla.

Þessi þrítugi leikmaður meiddist á fæti eftir tæklingu frá Matt Jarvis í leik gegn Wolves um helgina.

Brown þurfti að fara í spelku heim til Manchester og hann fór síðan í rannsóknir á sunnudag.

Nú er komið í ljós að Brown verður frá í fjórar til sex vikur en það þýðir að hann ætti að verða klár í slaginn fyrir HM í sumar.
Slapp
banner
banner