Heimild: Soccernet
Bandaríkjamaðurinn Landon Donovan hefur tjáð LA Galaxy að hann vilji gjarnan framlengja lánssamning sinn við Everton, sem að öllu óbreyttu rennur út þann 15. Mars.
,,Ég hef sagt Galaxy hvað ég vil, þeir vita af því og ég held góðu sambandi við stjórann þar," sagði Donovan sem að skoraði um helgina í 5-1 sigri Everton á Hull.
,,Að spila fyrir Everton hefur hjálpað mér mikið sem leikmanni, ég hef betri tækni og ég er ákveðnari."
,,Reynslan sem ég hef fengið við að spila hér mun skila sér á heimsmeistaramótinu, ég óttast engan."
Donovan, sem hefur aflað sér töluverðra vinsælda hjá Everton, veit þó að hann getur ekki verið lengur en til 15.apríl á Englandi því þá hefst MLS deildin að nýju.
,,Ég veit að ég get ekki verið lengur en til 15. apríl en að vera hjá Everton þangað til yrði frábært."



