Heimild: BBC
Arsene Wenger stjóri Arsenal gat ekki annað brosað út í annað eftir að hans lið vann Porto 5-0 í Meistaradeild Evrópu í kvöld.
Með þessum sigri er Arsenal komnir í átta liða úrslit og eru til alls líklegir í keppninni.
,,Þetta er aldrei fullkomið en þetta var mjög gott, mjög sterk frammistaða," sagði Wenger.
,,Fyrri hálfleikurinn okkar var frábær en eftir það vorum við í smá vandræðum."
,,Markið hjá Samir Nasri var frábært, það kom okkur í smá ró og þetta var þægilegur sigur."


