Víkingur Ólafsvík hefur fengið varnarmanninn Artjom Gonchar til liðs við sig.
Gonchar er frá Litháen en hann verður 26 ára á þessu ári.
Gonchar lék sinn fyrsta leik með Víkingi í gær þegar að liðið sigraði Völsung 4-2 í úrslitaleik B deildar Lengjubikarsins.
Hann ætti síðan að geta leikið sinn fyrsta deildarlek með Víkingi þegar liðið mætir KV í fyrstu umferðinni í annarri deild um næstu helgi.





