Helgi Pjetur Jóhannsson skoraði bæði mörk Leiknis í 2-0 sigri á Þrótti í fyrstu deildinni í kvöld og hann var sáttur í leikslok.
,,Þetta er gríðarlega sterkur sigur hjá okkur að koma hérna í Laugardalinn og taka þrjú stig," sagði Helgi Pjetur við Fótbolta.net eftir leik.
Helgi Pjetur skoraði bæði mörkin eftir að hafa fengið höfuðhögg en það varð til þess að hann þurfti að leika með umbúðir á höfðinu.
,,Ég fékk höfuðhögg og spjald einhverja hluta vegna, ég veit ekki af hverju það var. Núna fer ég upp á slysó að láta sauma. Það komu tvö mörk þarna stuttu eftir þannig að kannski spila ég bara með þetta í næsta leik líka."
Leiknismenn eru með tólf stig í öðru sæti deildarinnar eftir fimm leiki en byrjun liðsins kemur Helga ekki á óvart.
,,Alls ekki, við erum með gríðarlegan sterkan hóp. Við vorum með sterkt lið í fyrra og við erum bara búnir að bæta við okkur."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
























