Aga og úrskurðarnefnd KSÍ kom saman í gær líkt og alltaf á þriðjudögum. Alls voru 23 leikmenn í meistaraflokki úrskurðaðir í bann en einhverjir hafa þó þegar tekið út sína refsingu.
Fjórir FH-ingar voru úrskurðaðir í leikbann en bæði Jörundur Áki Sveinsson og Tommy Nielsen hafa tekið út sína refsingu. Heimir Guðjónsson þjálfari liðsins verður hins vegar í banni gegn KR í næsta leik sem og Pétur Viðarsson.
Martin Pedersen, varnarmaður Vals, var einnig fyrsti leikmaðurinn í Pepsi-deildinni í sumar til að fara í bann eftir að hafa fengið fjögur gul spjöld.
Í fyrstu deildinni fóru sjö leikmenn í bann. Þar af voru Páll Guðlaugsson annar þjálfari Fjarðabyggðar og Jóhann Benediktsson og Grétar Örn Ómarsson leikmenn liðsins en þeir fengu allir rauða spjaldið eftir leik gegn ÍR um síðustu helgi. Þetta var annað rauða spjaldið sem Jóhann fær á tímabilinu og því er hann kominn í tveggja leikja bann.
Pepsi-deild karla:
Jörundur Áki Sveinsson (Aðstoðarþjálfari FH)
Heimir Guðjónsson (Þjálfari FH)
Pétur Viðarsson (FH)
Tommy Nielsen (FH)
Einar Pétursson (Fylkir)
Jóhann Helgason (Grindavík)
Martin Pedersen (Valur)
1.deild karla:
Jóhann Ragnar Bendiktsson (Fjarðabyggð) - 2 leikir
Grétar Örn Ómarsson (Fjarðabyggð)
Páll Guðlaugsson (Þjálfari Fjarðabyggðar)
Atli Valsson (HK)
Igor Pesic (ÍA)
Ármann Pétur Ævarsson (Þór)
Steinarr Guðmundsson (Leiknir R.)
2.deild karla:
Sveinn Vilhjálmsson (Reynir Sandgerði)
Garðar Eðvaldsson (Víðir)
Ejub Purisev (Þjálfari Víkings Ó.)
3.deild karla:
Arnar Hólm Einarsson (Álftanes)
Sigurður Brynjólfsson (Álftanes)
Birgir Hákon Jóhannsson (Huginn)
1.deild kvenna:
Hildigunnur Sól Kristjánsdóttir (HK/Víkingur)
Guðrún Valdís Jónsdóttir (ÍA)
Kristín Lilja Friðriksdóttir (Víkingur R.)


