Haukar skelltu sér í sjósund á föstudaginn eftir að hafa tapað veðmáli við þjálfara teymi liðsins.
Haukar hafa ekki enn unnið sigur í Pepsi deildinni í sumar en liðið hefði þurft að vinna Val til að sleppa við þetta.
Liðið hefði auðveldlega átt að geta unnið leikinn því Arnar Gunnlaugsson klúðraði vítaspyrnu í stöðunni 2-2.
Haukar gerðu svo 3-3 jafntefli í gær eftir að hafa komist 3-1 yfir.
Hér að ofan má sjá stutt brot af þeim skella sér í sjósund og viðtal við Andra Marteinsson þjálfara liðsins.






















