Kári Ársælsson fyrirliði Breiðabliks telur liðið ekkert síðra en Motherwell þrátt fyrir að hafa dottið út fyrir skoska liðinu í Evrópudeildinni 0-2 samanlagt.
,,Svekkjandi virðist vera orðið svona beint eftir leik, þetta datt ekki með okkur í færunum í dag og það er svekkjandi," sagði Kári í samtali við Fótbolta.net eftir leikinn.
,,Við vorum kannski ekki siðari aðilinn í einvíginu öllu, eftir að við áttuðum okkur á því að við erum ekkert síðri en þeir þá sköpuðum við okkur slatta af færum. Mér fannst við vera á undan í tæklingum, sköllum og öðru.
Nánar er rætt við Kára í sjónvarpinu að ofan.